Innritun í Tónlistarskóla Skaftárhrepps

Frá Tónlistarskóla Skaftárhrepps
 
Innritun er hafin fyrir komandi önn og hefst niðurröðun tíma í næstu viku eftir því sem umsóknir berast. Kennsla hefst föstudaginn 2. sept. 2022

Aðalhljóðfærin sem kennt verður á í vetur eru piánó, gítar - klassisk, rafmagns og bassi, fiðla, selló, þverflauta, saxofónn, klarinett en einnig verður leiðbeint líka á harmonikku, ýmis blásturs- og strengjahljóðfæri og jafnvel söng og slagverk, fyrir þá sem áhuga hafa. Skólinn á þó nokkuð safn af hljóðfærum sem hægt er að fá lánuð eða leigð, svo sem trompeta, básunu, Ess-horn og baritonhorn, klarinett, þverflautu og saxófónn. Einnig selló og fiðlur í minni stærðum og auk þess klassíska gítara og harmonikkur.

Meðfylgjandi er umsóknareyðublað og nánari upplýsingar m.a. hljóðfærakost verða sendar forráðamönnum nemenda í tölvupósti.
 
Allar nánari upplýsingar á póstfang tonlist@klaustur.is eða síma 690-4519

Kveðja, Zbigniew Zuchowicz skólastjóri

 

Vinsamlegast skráið ykkur með því að fylla út allar upplýsingar á eyðublaðið