Íbúafundur í fjarfundi þriðjudaginn 9. febrúar kl. 20:00 - tengill

Kæru íbúar

Sveitarstjórn býður íbúum til samtals á fjarfundi þriðjudaginn 9. febrúar kl. 20:00. Fundurinn fer fram á fjarfundarforritinu Zoom fyrir þá sem vilja taka þátt og koma með spurningar. Einnig verður íbúafundinum streymt á Youtube; Íbúafundur í beinni. Fundardagskrá verður eftirfarandi;

  • Sorpmálin – niðurstaða viðhorfskönnunar og úttekt á flokkun í desember 2020
  • Dagvöruverslun á Kirkjubæjarklaustri – staðan og horfur
  • Kirkjubæjarstofa, þekkingarsetur – ný staðsetning skrifstofu sveitarfélagsins
  • Sundlaugin – upplýsingar vegna lagfæringa á hitakerfi
  • Almennar fyrirspurnir

Vonumst til að sjá ykkur sem flest. 

Hér má nálgast tengil á íbúafundinn; Zoom fjarfundur - tengill