Hvar ertu á kjörskrá?

Kosið verður til alþingis og um sameiningu sveitarfélaganna fimm í V-Skaft. og Rangárvallasýslu (Ljó…
Kosið verður til alþingis og um sameiningu sveitarfélaganna fimm í V-Skaft. og Rangárvallasýslu (Ljósm. Roberto Luigi Paganini)

Viðmiðunardagur fyrir Alþingiskosningar og sameiningarkosningar er 21. ágúst nk. Finna má ýmsar upplýsingar um Alþingiskosningarnar á kosning.is en kosningarnar fara fram þann 25. september nk.

Flutningur á lögheimili á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags, sem á sér stað eftir 20. ágúst nk. hefur ekki áhrif á útgefinn kjörskrárstofn. Þetta þýðir að tilkynningar um lögheimilisbreytingar þurfa að berast í síðasta lagi 20. ágúst eigi þær breytingar að verða skráðar í þjóðskrá fyrir viðmiðunardag.

Þann 24. ágúst nk. er gert ráð fyrir á opnað verði fyrir vefuppflettið „Hvar á ég að kjósa“ inni á skra.is þar sem einstaklingar geta athugað hvar þeir eigi að kjósa.

Allir geta fundið hvar þeir eiga að kjósa á vef Stjórnarráðs Íslands

Þjóðskrá lógó