Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga 14. maí 2022

Frestur til að skila framboðslistum til kjörstjórnar Skaftárhrepps er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022. Framboðum er hægt að skila til formanns kjörstjórnar fyrir þann tíma eða á fund kjörstjórnar Skaftárhrepps, sem haldinn verður kl. 11:00 föstudaginn 8. apríl 2022. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Skaftárhrepps.

Athygli er vakin á að lágmarksfjöldi meðmælenda er 20 þar sem íbúafjöldi er komin yfir 500.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar til framboða má finna á vefnum www.kosning.is

Kjörstjórn Skaftárhrepps

Sigurlaug Jónsdóttir, formaður

Sigurjóna Matthíasdóttir

Sólveig Pálsdóttir