Sveitarstjórnin sem kveður

Fráfarandi sveitarstjórn Skaftárhrepps: Katrín, Bjarki, Jón Hrafn, Sandra Brá sveitarstjóri, Heiða G…
Fráfarandi sveitarstjórn Skaftárhrepps: Katrín, Bjarki, Jón Hrafn, Sandra Brá sveitarstjóri, Heiða Guðný og Jóna Björk. (Ljósm. LM)

Síðasti fundur fráfarandi sveitarstjórnar Skaftárhrepps var haldinn 11. maí 2022. Fundurinn var haldinn í fundaraðstöðu Kirkjubæjarstofu, þekkingarseturs, þar sem einnig eru skrifstofur sveitarstjórnar hreppsins. 

Oddviti Skaftárhrepps, Bjarki Guðnason, þakkaði sveitarstjóra, starfsfólki skrifstofu sveitarfélagsins og starfsfólki allra stofnanna fyrir samstarfið á kjörtímabilinu.