Laust starf forstöðumanns Náttúrustofu Suðausturlands

Forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands

Stjórn Náttúrustofu Suðausturlands auglýsir starf forstöðumanns laust til umsóknar. Stofan er alhliða rannsóknar- og þjónustustofnun í náttúrufræðum og starfar eftir lögum nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Starfssvæðið nær yfir Sveitarfélagið Hornafjörð og Skaftárhrepp og er stofan með aðsetur á Höfn og starfsstöð á Kirkjubæjarklaustri. Náttúrustofan hefur starfað frá 2013 og árið 2021 voru stöðugildi hjá stofunni 4,7 talsins.

Helstu verkefni forstöðumanns:

  • Ábyrgð á daglegri starfsemi stofunnar, rekstri og stjórnun.
  • Leiðir rannsóknir- og styrkjaöflun á verkefnasviði stofunnar
  • Fjármál, áætlanagerð og innleiðing stefnumótunar í samstarfi við stjórn.
  • Ábyrgð á verkefnasamningum
  • Samskipti við stjórnvöld, aðildarsveitarfélög, samstarfsaðila og viðskiptavini
  • Veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í náttúrufræði eða þekking sem meta má til jafns við það.
  • Haldbær starfsreynsla af umhverfis- og náttúrufræðistörfum.
  • Reynsla af styrkumsóknum og sjálfstæðum vinnubrögðum
  • Stjórnunar- og rekstrareynsla er kostur.
  • Forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Samstarfshæfni og sveigjanleiki er nauðsynlegur.
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni í ræðu og riti á íslensku og að minnsta kosti einu öðru tungumáli

 

Umsókn ásamt kynningarbréfi og ferilskrá skal senda í Ráðhús Hornafjarðar merkt „Forstöðumaður Náttúrustofu Suðausturlands“, Hafnarbraut 27, 780 Höfn eða á netfangið afgreidsla@hornafjordur.is fyrir 13. febrúar 2022.

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar í síma 470 8016 eða á netfangið matthildur@hornafjordur.is.

Sjá nánar á heimasíðu Náttúrustofu Suðausturlands, www.nattsa.is