Vinnuskóli og vinna fyrir námsmenn sumarið 2021

Náttúran er fögur en það þarf að snyrta og fegra umhverfið líka (Ljósm. LM)
Náttúran er fögur en það þarf að snyrta og fegra umhverfið líka (Ljósm. LM)

SKAFTÁRHREPPUR - VINNUSKÓLI

Ungmenni sem eru að ljúka 7. 8. 9. og 10. bekk og eru með lögheimili í Skaftárhreppi eiga rétt á vinnu í vinnuskóla sveitarfélagsins sumarið 2020. Unnið verður í 6 vikur, frá 10. júní til og með 21. júlí. Vinnutími verður alla virka daga frá kl. 09:00-12:00 og 13:00 -16:00 nema föstudaga en þá verður unnið frá 09-12.

Samkvæmt 27.gr um vinnutíma barna í reglugerð 426/1999 um vinnutíma barna og unglinga má vinnutími barna 13-14 ára vera 7 klst á dag og 35 klst á viku þegar um er að ræða vinnu sem fram fer á tíma sem skóli starfar ekki. Daglegur vinnutími 15 ára barna má vera 8 klst á dag og 40 klst á viku.

Umsóknareyðublað fyrir vinnuskóla má nálgast  hér eða undir stjórnsýsla á www.klaustur.is

 

SKAFTÁRHREPPUR – SUMARTÖRF NÁMSMANNA - ÁTAKSVERKEFNI VMST

Okkur vantar unga og öfluga námsmenn til starfa sem fyrst í sumarátaksstörf.

Námsmenn þurfa að vera skráðir í nám haust 2021 eða verið skráðir í nám á vorönn 2021.

Ráðningartími námsmanna er að hámarki 2,5 mánuðir. Miðað er við tímabilið 15.maí – 15.sept.

Námsmenn þurfa að verða 18 ára (á árinu) eða eldri.

 

2 störf í göngustígagerð: efnisflutningar, aðstoð við formun og lagninu göngustíga

2 störf í áhaldahús: umhirða og aðstoð við viðhald

2 störf í vinnuskóla: flokksstjórn og umsjón með vinnuskóla

1 starf hjá byggingarfulltrúa: gagnaflokkun, skönnun teikninga og gagna, aðgengismál skoðuð og skráð

 

Umsóknum fyrir ofangreind störf skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir lok föstudagsins 21. maí 2021. Einnig er hægt að skila umsóknum rafrænt á bygg@klaustur.is

Skipulags- og byggingarfulltrúi Skaftárhrepps, gsm 897-4837