![]()
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri er árlegur viðburður þar sem þjóðþekkti listamenn hafa stigið og stokk. Árið 2011 var dagskráin mjög vönduð og voru það Garðar Thór Cortes, tenór, Þóra Einarsdóttir, sópran, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Krystyna Cortes píanóleikari, spænski gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui og lettneski píanóvirtúósinn Inese Klotina heilluðu tonleikagesti.
Á efnisskránni voru gullfalleg og krefjandi verk frá byrjun 20. aldar til okkar daga, sönglög eftir tónskáldin Morales-Caso, Britten, Rachmaninoff, Poulenc, Rimsky-Korsakoff, Strauss, Berg og Vaughan-Williams, gítareinleikur eftir Houghton, og píanóeinleikur eftir Medtner. Hátíðinni allri lýkur svo með flutningi Garðars Thórs og Þóru á einni af fegurstu senum óperubókmenntanna, þegar Rodolfo og Mimí kynnast í óperunni La Bohème. Þau munu syngja aríurnar Che gelida manina, Sí, mi chiamano Mimí og dúettinn O, soave fanciulla.
Það er stefna hátíðarinnar að blanda saman þekktum og óþekktum verkum og að stuðla að frumsköpun í tónlist. Hátíðin fékk því í ár Hauk Tómasson til að þess að semja nýtt verk, Sönglög úr Söng steinasafnarans við ljóð eftir Sjón, sem Guðrún Jóhanna og Francisco Javier munu frumflytja.
Hótel og gististaðir á og í nágrenni Klausturs bjóða gestum hátíðarinnar upp á gistingu og fæði í ýmsum verðflokkum. Um það má fá upplýsingar í Upplýsingamiðstöð ferðamála á Klaustri í síma 487-4620 á síðunni www.klaustur.is eða í netfanginu info@klaustur.is
www.gardarthorcortes.com
www.einarsdottir.com
www.gudrunolafsdottir.com
www.javierjauregui.com
http://www.iliadkultur.com/inese.html
YouTube:
Garðar Thor Cortes syngur Caruso:
http://www.youtube.com/watch?v=sLB6rn8Q80s
Þóra Einarsdóttir og Jónas Sen flytja Spring Waters eftir Rachmaninoff:
http://www.youtube.com/watch?v=YwV21r9-J6M
Guðrún Jóhanna og Francisco Javier flytja katalónska þjóðlagið Söngur fuglanna:
http://www.youtube.com/user/lentoadagioallegro#p/u/1/cDgUkvbbzIs
Inese Klotina spilar Medtner:
http://www.youtube.com/user/iliadkultur#p/u/4/9RdLhvReTck
Efnisskrá/Programme:
Laugardagur 13.8. kl. 17:00
Samtími og síð-rómantík
Phillip Houghton Stelle
(1954-) Francisco Javier Jáuregui
Haukur Tómasson Hún er vorið (Matthías Johannessen)
(1960-)
Sönglög úr Söng steinasafnarans eftir Sjón (frumflutningur)
- Tímamót
- Strengleikur
- Dægurlag
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui
Eduardo Morales-Caso Homenajes
(1969-) I Homenaje a Joaquín Rodrigo
II Homenaje a Frederic Mompou
III Homenaje a Manuel de Falla (Nana dramática)
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui
Hlé
Vaughan Williams Let Beauty Awake
(1872-1958)
Richard Strauss Das Rosenband
(1864-1949)
Alban Berg Die Nachtigall
(1885-1935)
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Inese Klotina
Nikolai Karlovitch Medtner Sónata í a-moll Op. 30 (Styrjaldarsónatan)
(1880-1951) Allegro risoluto - allegro molto
Miniatures
Inese Klotina
Sunnudagur 14.8. kl. 15:00
Frá Britten til la Bohème
Benjamin Britten Winter Words:
(1913-1976)
1. At day-close in November
2. Midnight on the Great Western ‘The Journeying Boy'
3. Wagtail and Baby ‘A Satire'
4. The Little Old Table
5. The Choirmaster's Burial ‘The Tenor Man's Story'
6. Proud Songsters ‘Thrushes, Finches and Nightingales'
7. The Railway Station, Upway ‘The Convict and the Boy with the Violin'
8. Before Life and after
O Waly,Waly,
The Miller of Dee
The foggy, foggy dew
Garðar Thór Cortes og Krystyna Cortes
Hlé
Francis Poulenc: úr Fiançailles pour rire
(1899-1963) - IV Mon cadavre est doux comme un gant
- V Violon
- VI Fleurs
Nikolai Rimsky-Korsakoff Op 43 No 2 (Það var ekki vindurinn)
(1844-1908) Op 40 No 3 (Á friðsælli nóttu)
Sergei Rachmaninoff Op 4 Nr 4 (Aldrei syngja fyrir mig framar)
(1873-1943) Op 21 No 5 (Liljurnar)
Op 21 No 7 (Hér er yndislegt)
Þóra Einarsdóttir og Krystyna Cortes
Giacomo Puccini Úr óperunni La Bohème:
(1858-1924) - Che gelida manina
- Sí, mi chiamano Mimí
- O, soave fanciulla
Garðar Thór Cortes, Þóra Einarsdóttir og Krystyna Cortes
Vinsælt hefur verið að gista í nágrenni Kirkjubæjarklausturs til að njóta þar tónlistar og náttúrufegurðar undir lok sumarsins og er fólki ráðlagt að panta gistingu í tíma. Það er Menningarmálanefnd Skaftárhrepps sem stendur fyrir hátíðinni.
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri voru stofnaðir af Eddu Erlendsdóttur, píanóleikara. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir helgina 16. – 18. ágúst árið 1991 og hafa þeir verið haldnir árlega síðan. Á annað hundrað tónlistarmanna, íslenskra sem erlendra, hafa komið fram á tónleikunum. Edda Erlendsdóttir var listrænn stjórnandi tónleikanna frá upphafi þangað til Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópransöngkona, tók við árið 2006. Margir af tónleikunum í gegnum árin hafa verið teknir upp af Ríkisútvarpinu.
Tónlistarmenn sem komið hafa fram á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri:
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Ágúst Ólafsson, barítón
Ásdís Valdimarsdóttir, lágfiðla
Áshildur Haraldsdóttir, flauta
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
Bergþór Pálsson, baritón
Björn Thoroddsen, gítar
Brjánn Ingason, fagott
Bryndís Björgvinsdóttir, selló
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Caput
Christophe Beau, selló
Claudio Puntin, klarínetta
Dominique de Williencourt, selló
Edda Erlendsdóttir, píanó
Egill Ólafsson, söngur
Einar Jóhannesson, klarínetta
Einar Steen-Nökleberg, píanó
Elena Jáuregui, fiðla
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Finnur Bjarnason, tenór
Francisco Javier Jáuregui, klassískur gítar
Geir Inge Lotsberg, fiðla
Gerður Gunnarsdóttir, fiðla
Gerrit Schuil, píanó
Georg Klütsch, fagott
Gísli Stefánsson, barítón
Greta Guðnadóttir, fiðla
Guðjón Halldór Óskarsson, kórstjóri
Guðmundur Kristmundsson, lágfiðla
Guðni Franzson, klarínetta
Guðný Guðmundsdóttir, fiðla
Guðríður St. Sigurðardóttir, píanó
Guðrún Hrund Harðardóttir, lágfiðla
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Guðrún Th. Sigurðardóttir, selló
Gunnar Guðbjörnsson, tenór
Gunnar Kvaran, selló
Gunnar Þórðarson, gítar
Hávarður Tryggvason, kontrabassi
Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla
Jorge Chaminé, baritón
Joseh Ognibene, horn
Jón Rafnsson, kontrabassi
Jónas Ingimundarson, píanó
Karlakór Suðurlands
Kristinn H. Árnason, gítar
Luc Tooten, selló
Marie-Francoise Bucquet, píanó
Matej Sarc, óbó
Michael Guttman, fiðla
Michael Stirling, selló
Mona Kontra, píanó
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Norma Fisher, píanó
Olivier Manoury, bandoneon
Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópran
Pálína Árnadóttir, fiðla
Peter Tomkins, óbó
Pétur Grétarsson, slagverk
Pétur Jónasson, klassískur gítar
Rannveig Fríða Bragadóttir, mezzósópran
Richard Simm, píanó
Richard Talkowsky, selló
Robert Brightmore, klassískur gítar
Scott Ballantyne, selló
Selma Guðmundsdóttir, píanó
Sesselja Kristjánsddóttir, mezzósópran
Sif Tulinius, fiðla
Signý Sæmundsdóttir, sópran
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran
Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla
Sigurður Flosason, saxófónn
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla
Sólrún Bragadóttir, sópran
Stefán Jón Bernharðsson, horn
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
Svava Bernharðsdóttir, lágfiðla
Tríó Nordica
Una Sveinbjarnardóttir, fiðla
Unnur Sveinbjarnardóttir, lágfiðla
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanó
Vovka Stefán Ashkenazy, píanó
Zbigniew Dubik, fiðla
Zoltan Toth, lágfiðla
Þóra Einarsdóttir, sópran
Þórunn Ósk Marinósdóttir, lágfiðla
KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI 2010 - 20. hátíð
![]()
Hinir árlegu KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI fögnuðu í fyrra tuttugu ára afmæli með flutningi fyrsta flokks tónlistarmanna á fjölbreyttri kammertónlist frá miðöldum fram á okkar daga. Tónlistarmennirnir sem komu fram voru:
Edda Erlendsdóttir, píanó
Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Margrét Árnadóttir, selló
Daníel Bjarnason, píanó
Francisco Javier Jáuregui, gítar
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran og listrænn stjórnandi
Píanóleikarinn Edda Erlendsdóttir hlaut nú í ár bæði riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín á vettvangi íslenskrar tónlistar og íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins, þar sem hún túlkar píanókonserta eftir Haydn, en Edda mun flytja einn konsertanna á hátíðinni í útgáfu með strengjakvartett.
Á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri er flutt kammertónlist frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar fram á okkar daga, en það er aðstandendum hátíðarinnar sérstakt gleðiefni að hafa fengið tónskáldið, hljómsveitarstjórann og píanóleikarann Daníel Bjarnason til þess að semja sérstaklega nýtt verk til frumflutnings á hátíðinni. Verkið heitir Larkin Songs og er skrifað fyrir mezzósópran og píanókvintett, en Daníel mun sjálfur leika píanópartinn. Daníel hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í ár, bæði sem höfundur ársins, fyrir tónverkin á plötunni Processions, og fyrir tónverk ársins, Bow to string.
Fiðluleikararnir Elfa Rún Kristinsdóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir, víóluleikarinn Þórunn Ósk Marinósdóttir og sellóleikarinn Margrét Árnadóttir eru allar í fremstu röð íslenskra strengjaleikara og hafa komið fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og víðar. Árið 2006 hlaut Elfa Rún bæði íslensku tónlistarverðlaunin og fyrstu verðlaun í Johann Sebastian Bach tónlistarkeppninni í Leipzig. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og listrænn stjórnandi er margverðlaunuð í alþjóðlegum söngkeppnum og hefur komið fram víðs vegar í Evrópu og sungið inn á geisladiska, en gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui hefur komið fram bæði sem einleikari og meðleikari í Evrópu, Bandaríkjunum og Suð-austur Asíu.
Vinsælt hefur verið að gista í nágrenni Kirkjubæjarklausturs til að njóta þar tónlistar og náttúrufegurðar undir lok sumarsins og er fólki ráðlagt að panta gistingu í tíma. Athygli fastagesta er vakin á breyttri tímasetningu tónleikanna. Það er Menningarmálanefnd Skaftárhrepps sem stendur fyrir hátíðinni en upplýsingar og miðapantanir eru í síma: 487-4620.
www.klaustur.is
Efnisskrá Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri 6. – 8. ágúst 2010
Föstudagur 6.8. kl. 20:00
Edvard Grieg: Ljóðræn smálög fyrir píanó og sex ljóð eftir Ibsen fyrir rödd og píanó, Op. 25.
Claude Debussy: Strengjakvartett, Op. 10.
Laugardagur 7.8. kl. 20:00
Agustín Castilla-Ávila: Adriano fyrir mezzósópran og gítar.
Arvo Pärt: Es sang vor langen Jahren fyrir alt, fiðlu og víólu.
Salvatore Sciarrino: Capricci fyrir einleiksfiðlu.
Mario Castelnuovo-Tedesco: Kvintett fyrir gítar og strengjakvartett, Op. 143.
Sunnudagur 8.8. kl. 15:00
Francisco Javier Jáuregui: Sephardic Songs fyrir mezzósópran og gítar.
Sergei Prokofiev: Sónata fyrir tvær fiðlur, Op. 56.
Daníel Bjarnason: Larkin Songs (FRUMFLUTNINGUR) fyrir mezzósópran og píanókvintett.
Franz Joseph Haydn: Konsertínó í f-dúr fyrir píanó.
Myndir af listamönnunum:
Þórunn Ósk Marinósdóttir, Margrét Árnadóttir, Elfa Rún Kristinsdóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir, Edda Erlendsdóttir, Daníel Bjarnason, Francisco Javier Jáuregui og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.










