Kammertónleikar 6.-8. ágúst 2010

KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
20. hátíð


Hinir árlegu KAMMERTÓNLEIKAR Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI fagna í ár tuttugu ára afmæli með flutningi fyrsta flokks tónlistarmanna á fjölbreyttri kammertónlist frá miðöldum fram á okkar daga. Tónlistarmennirnir sem koma fram á tónleikunum í ár eru:

Edda Erlendsdóttir, píanó
Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Margrét Árnadóttir, selló
Daníel Bjarnason, píanó
Francisco Javier Jáuregui, gítar
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran og listrænn stjórnandi

Píanóleikarinn Edda Erlendsdóttir hlaut nú í ár bæði riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín á vettvangi íslenskrar tónlistar og íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins, þar sem hún túlkar píanókonserta eftir Haydn, en Edda mun flytja einn konsertanna á hátíðinni í útgáfu með strengjakvartett.

Á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri er flutt kammertónlist frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar fram á okkar daga, en það er aðstandendum hátíðarinnar sérstakt gleðiefni að hafa fengið tónskáldið, hljómsveitarstjórann og píanóleikarann Daníel Bjarnason til þess að semja sérstaklega nýtt verk til frumflutnings á hátíðinni. Verkið heitir Larkin Songs og er skrifað fyrir mezzósópran og píanókvintett, en Daníel mun sjálfur leika píanópartinn. Daníel hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í ár, bæði sem höfundur ársins, fyrir tónverkin á plötunni Processions, og fyrir tónverk ársins, Bow to string.

Fiðluleikararnir Elfa Rún Kristinsdóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir, víóluleikarinn Þórunn Ósk Marinósdóttir og sellóleikarinn Margrét Árnadóttir eru allar í fremstu röð íslenskra strengjaleikara og hafa komið fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og víðar. Árið 2006 hlaut Elfa Rún bæði íslensku tónlistarverðlaunin og fyrstu verðlaun í Johann Sebastian Bach tónlistarkeppninni í Leipzig. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og listrænn stjórnandi er margverðlaunuð í alþjóðlegum söngkeppnum og hefur komið fram víðs vegar í Evrópu og sungið inn á geisladiska, en gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui hefur komið fram bæði sem einleikari og meðleikari í Evrópu, Bandaríkjunum og Suð-austur Asíu.

Vinsælt hefur verið að gista í nágrenni Kirkjubæjarklausturs til að njóta þar tónlistar og náttúrufegurðar undir lok sumarsins og er fólki ráðlagt að panta gistingu í tíma. Athygli fastagesta er vakin á breyttri tímasetningu tónleikanna. Það er Menningarmálanefnd Skaftárhrepps sem stendur fyrir hátíðinni en upplýsingar og miðapantanir eru í síma: 487-4620.

www.klaustur.is

Efnisskrá Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri 6. – 8. ágúst 2010

Föstudagur 6.8. kl. 20:00
Edvard Grieg:     Ljóðræn smálög fyrir píanó og sex ljóð eftir Ibsen fyrir rödd og píanó, Op. 25.
Claude Debussy:     Strengjakvartett, Op. 10.

Laugardagur 7.8. kl. 20:00 
Agustín Castilla-Ávila:     Adriano fyrir mezzósópran og gítar.
Arvo Pärt:     Es sang vor langen Jahren fyrir alt, fiðlu og víólu.
Salvatore Sciarrino:     Capricci fyrir einleiksfiðlu.
Mario Castelnuovo-Tedesco: Kvintett fyrir gítar og strengjakvartett, Op. 143.   


Sunnudagur 8.8. kl. 15:00
Francisco Javier Jáuregui:     Sephardic Songs fyrir mezzósópran og gítar.
Sergei Prokofiev:     Sónata fyrir tvær fiðlur, Op. 56.     
Daníel Bjarnason:     Larkin Songs (FRUMFLUTNINGUR) fyrir mezzósópran og píanókvintett.
Franz Joseph Haydn:     Konsertínó í f-dúr fyrir píanó.   


Myndir af listamönnunum:
Þórunn Ósk Marinósdóttir, Margrét Árnadóttir, Elfa Rún Kristinsdóttir,  Helga Þóra Björgvinsdóttir, Edda Erlendsdóttir, Daníel Bjarnason, Francisco Javier Jáuregui og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir.

Saga Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri

Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri voru stofnaðir af Eddu Erlendsdóttur, píanóleikara. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir helgina 16. – 18. ágúst árið 1991 og hafa þeir verið haldnir árlega síðan. Á annað hundrað tónlistarmanna, íslenskra sem erlendra, hafa komið fram á tónleikunum. Edda Erlendsdóttir var listrænn stjórnandi tónleikanna frá upphafi þangað til Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópransöngkona, tók við árið 2006. Margir af tónleikunum í gegnum árin hafa verið teknir upp af Ríkisútvarpinu.

Tónlistarmenn sem komið hafa fram á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri:

Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Auður Hafsteinsdóttir, fiðla
Ágúst Ólafsson, barítón
Ásdís Valdimarsdóttir, lágfiðla
Áshildur Haraldsdóttir, flauta
Ástríður Alda Sigurðardóttir, píanó
Bergþór Pálsson, baritón
Björn Thoroddsen, gítar
Brjánn Ingason, fagott
Bryndís Björgvinsdóttir, selló
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Caput
Christophe Beau, selló
Claudio Puntin, klarínetta
Dominique de Williencourt, selló
Edda Erlendsdóttir, píanó
Egill Ólafsson, söngur
Einar Jóhannesson, klarínetta
Einar Steen-Nökleberg, píanó
Elena Jáuregui, fiðla
Eyjólfur Eyjólfsson, tenór
Finnur Bjarnason, tenór
Francisco Javier Jáuregui, klassískur gítar
Geir Inge Lotsberg, fiðla
Gerður Gunnarsdóttir, fiðla
Gerrit Schuil, píanó
Georg Klütsch, fagott
Gísli Stefánsson, barítón
Greta Guðnadóttir, fiðla
Guðjón Halldór Óskarsson, kórstjóri
Guðmundur Kristmundsson, lágfiðla
Guðni Franzson, klarínetta
Guðný Guðmundsdóttir, fiðla
Guðríður St. Sigurðardóttir, píanó
Guðrún Hrund Harðardóttir, lágfiðla
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran
Guðrún Th. Sigurðardóttir, selló
Gunnar Guðbjörnsson, tenór
Gunnar Kvaran, selló
Gunnar Þórðarson, gítar
Hávarður Tryggvason, kontrabassi
Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla
Jorge Chaminé, baritón
Joseh Ognibene, horn
Jón Rafnsson, kontrabassi
Jónas Ingimundarson, píanó
Karlakór Suðurlands
Kristinn H. Árnason, gítar
Luc Tooten, selló
Marie-Francoise Bucquet, píanó
Matej Sarc, óbó
Michael Guttman, fiðla
Michael Stirling, selló
Mona Kontra, píanó
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó
Norma Fisher, píanó
Olivier Manoury, bandoneon
Ólafur Kjartan Sigurðarson, barítón
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, sópran
Pálína Árnadóttir, fiðla
Peter Tomkins, óbó
Pétur Grétarsson, slagverk
Pétur Jónasson, klassískur gítar
Rannveig Fríða Bragadóttir, mezzósópran
Richard Simm, píanó
Richard Talkowsky, selló
Robert Brightmore, klassískur gítar
Scott Ballantyne, selló
Selma Guðmundsdóttir, píanó
Sesselja Kristjánsddóttir, mezzósópran
Sif Tulinius, fiðla
Signý Sæmundsdóttir, sópran
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran
Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla
Sigurður Flosason, saxófónn
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Sigurgeir Agnarsson, selló
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, fiðla
Sólrún Bragadóttir, sópran
Stefán Jón Bernharðsson, horn
Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
Svava Bernharðsdóttir, lágfiðla
Tríó Nordica
Una Sveinbjarnardóttir, fiðla
Unnur Sveinbjarnardóttir, lágfiðla
Víkingur Heiðar Ólafsson, píanó
Vovka Stefán Ashkenazy, píanó
Zbigniew Dubik, fiðla
Zoltan Toth, lágfiðla
Þóra Einarsdóttir, sópran
Þórunn Ósk Marinósdóttir, lágfiðla