Úthlutunarreglur um styrkveitingu til að halda 17 júní hátíðlegan fyrir íbúa í Skaftárhreppi
1. gr.
Íþrótta og æskulýðsnefnd sér um úthlutun styrkja til 17 júní halda í Skaftárhrepp í samræmi við fjárhagsáætlun Skaftárhrepps.

2. gr.
Íþrótta og æskulýðsnefnd skal auglýsa eftir umsóknum um styrk fyrir þá sem vilja halda 17 júní hátíðlegan fyrir íbúa Skaftárhrepp. Umsóknarfrestur skal að jafnaði miðast 1. apríl.
Styrkur skal greiddur út ekki seinna en fyrir 1. júní.

3. gr.
Um styrk geta sótt félög og aðilar sem sinna íþrótta, tómstunda eða æskulýðsstarfi í sveitafélaginu eða hafa með höndum aðra sambærilega starfsemi. Ef enginn sýnir áhuga á að halda 17 júní hátíðlegan getur íþrótta og æskulýðsnefnd leitað til einstaklinga um að sjá um hátíðarhöldin.

Umsókn skal fylgja eftirfarandi skriflega:
Áætlun umsækjanda um umfang hátíðarhaldanna berist skriflega
Reiknisnúmer umsækjanda til að auðvelda að borga styrkinn út ef umsókn er samþykkt.

4. gr.
Stutt greinargerð um hvað var gert og hvernig til tókst berist íþrótta og æskulýðsnefnd fyrir 1.apríl ári síðar.