1. gr.
Hundahald í Skaftárhreppi sæti eftirfarandi takmörkunum:
a) Skylt er að skrá alla hunda í Skaftárhreppi, þar með talda smalahunda á lögbýlum.
b) Eigandi er ábyrgur fyrir hverju því tjóni sem hundur hans kann að valda.
c) Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa nema smalahunda,
minkahunda, dýrhunda og sporhunda, þegar þeir eru í störfum í gæslu eigenda eða umráðamanna. Alla aðra hunda skal hafa í taumi úti við í fylgd með manni er hefur fullt vald yfir þeim.
Eigi er heimilt að hafa með sér hunda, þótt í taumi séu, inn í skólahús, almennar skrifstofur,samkomuhús eða verslanir svo og starfsstöðvar hverju nafni sem nefnast, þar sem úrvinnsla, meðferð eða geymsla matvæla á sér stað.
Þeir sem þurfa aðstoð leiðsöguhunda,(blindrahunda) skal þó heimill aðgangur að opinberum byggingum og vinnustöðum öðrum en þeim sem framleiða, framreiða eða selja matvöru.
d) Hundaeigendum er skylt að sjá svo um að hundar raski eigi ró manna eða verði mönnum til óþæginda.
Skilyrði fyrir hundahaldi í sambýlishúsum er að allir íbúðareigendur samþykki slíkt og skal leggja fram skriflegt samþykki þar um við skráningu hunds.
e) Til að standa straum af kostnaði er leiðir af skráningu ,hreinsun og eftirliti með hundum í hreppnum, skal hver hundeigandi greiða árlegt gjald fyrir hvern einstakan hund til hreppsjóðs.
Upphæð gjaldsins skal ákveðin í gjaldskrá sem Umhverfisráðherra staðfestir.
Eindagi eftirlitsgjaldsins er 1. desember ár hvert.
f) Sé hundeigandi undir 16 ára aldri verður honum eigi veitt leyfi til
hundahalds nema forráðandi ábyrgist allar skyldur hans skv. samþykkt þessari og áriti sérstaka yfirlýsingu þess efnis.
2.gr.
Fyrir minniháttar brot á samþykkt þessari skal hundeigandi sæta skriflegri áminningu og greiða allan kostnað er leiðir af brotinu.
Ef um ítrekað brot er að ræða eða meiriháttar brot hefur hundeigandi fyrirgert rétti sínum til að halda hund í Skaftárhreppi.
Skal hann gjalda allan kostnað vegna brotsins og afhenda hund sinn til lögreglu, sem síðar ákveður hvað gert skuli við hundinn.
3.gr.
Allir flækingshundar sem ekki eru í fylgd með eiganda eða umráðamanni, skulu teknir úr umferð.
Á það jafnt við um hunda sem skráðir eru í Skaftárhreppi sem og aðkomuhunda.
Gefi eigandi sig ekki fram og/eða vitjar ekki hundsins innan 7 daga hefur lögreglan heimild til að lóga hundinum í samræmi við ákvæði laga nr. 15/1994 um dýravernd á kostnað hundaeiganda.
Hunda sem ráðast á menn eða skepnur skal fjarlægja og þeim lógað þegar í stað.
Lögreglustjóri og heilbrigðisnefnd hafa eftirlit með hundum skv. samþykkt þessari og skulu þessir aðilar tilkynna hreppsnefnd án tafar um allar kærur sem þeim berast vegna meintra brota á samþykktinni.
4.gr.
Framangreind samþykkt hreppsnefndar Skaftárhrepps staðfestist hér með skv. 22. gr. laga nr. 81/1988 um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, til þess að öðlast gildi þegar við birtingu.
Umhverfisráðuneytið, 29. maí 1995
f.h.r
Ingimar Sigurðsson ( sign),
Sigurborg Sæmundsdóttir ( sign)










