Fundur Umhverfis- og náttúruverndar Skaftárhrepps, haldinn á Kaffi- Munkum, fimmtudaginn 20. október 2011 kl. 16:00. Fundargerð er tölvuskráð og er tvær blaðsíður að lengd.
Mætt eru:
Ragnheiður Hlín Simonardóttir, formaður.
Kári Kristjánsson, varaformaður.
Bryndís Guðgeirsdóttir, ritari.
Formaður setur fund og bíður fundarmenn velkomna.
Næst er gengið til dagskrár:
- Umhverfisþing 14. október 2011.
Kári greinir frá Umhverfisþingi sem haldið var 14. október sl. á Hótel Selfossi og hann sat, m.a. sem fulltrúi Umhverfis- og náttúruverndarnefndar Skaftárhrepps. Vekur hann athygli á Hvítbókinni sem er aðgengileg inn á heimasíðu Umhverfisráðuneytisins og rætt var um á Umhverfisþinginu.
- Bréf til Íslenska Gámafélagsins
Heiða greinir frá bréfi sem formaður sendi til Íslenska Gámafélagsins, skv. ákvörðun síðasta fundar, dags. 23. febrúar 2011 um fyrirkomulag og kostnaðaráætlun vegna hreinsunarvikna í sveitum Skaftárhrepps. Ekki hafa borist svör frá Íslenska Gámafélaginu önnur en þau að hugmyndir Umhverfis- og náttúruverndarnefndar séu í ákveðnu ferli. Hefur formaður reynt að hnikkja á svörum en það hefur ekki skilað árangri enn sem komið er.
- Umgengni og ástand á áningastöðum ferðamanna í Skaftárhreppi.
Kári vekur athygli á slæmu ástandi á áningarstöðum ferðamanna í Eldhrauni og víðar. Víða er orðin landeyðing og skemmd á áður mosavöxnum svæðum vegna átroðnings manna, úrbóta er þörf á útsýnispöllum og víða væri þörf á salernisaðstöðu. Friður og frumkraftar, Vatnajökulsþjóðagarður og Ferðamálafélag Skaftárhrepps eru að fara í samstarfsverkefni til að reyna að spyrna við fótum. Umhverfis- og náttúruverndarnefnd hefur fullan hug á að ganga inn í það verkefni. Kári tekur að sér að ræða hugsanlega þátttöku nefndarinnar við þá aðila sem við á.
Vill nefndin koma ábendingu til sveitarstjórnar um að nauðsyn sé að hefta útbreiðslu á ágengum og eitruðum plöntutegundum í sveitarfélaginu, s.s. Bjarnarklóar, Kerfils og Lúpínu.
- Innsend bréf til kynningar:
Bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 11. október 2011, um ársfund Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga sem að þessu sinni verður haldinn í Mosfellsbæ þann 27. október n.k.
Bréf frá Umhverfisstofnun, dags. 18. október 2011, um tilnefningu fulltrúa í vatnasvæðisnefnd.
Erindi send áfram til nefndarmanna.
- Umræða um Umhverfisverðlaun Skaftárhrepps.
Nefndarfólk ætlar að kasta á milli sín hugmyndum um hvernig æskilegast verður að standa að veitingu umhverfisverðlauna Skaftárhrepps árið 2011.
Formanni falið að ræða við formann Íþrótta- og Æskulýðsnefndar um samstarf við afhendingu eins og verið hefur undanfarin ár og tímasetningu verðlaunaafhendingar.
- Önnur mál:
Kári vinnur nú að gerð Ástandsskýrslu fyrir friðlýst svæði, sem unnin er árlega fyrir Umhverfisstofnun. Að þessu sinni fjallar skýrslan um Dverghamra, Kirkjugólf og Álftaversgíga.
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd Skaftárhrepps vill að endingu koma ánægju sinni og einlægu þakklæti á framfæri til allra þeirra sem komu að hreinsunarstörfum og stuðningi við samfélag Skaftárhrepps í kjölfar eldgossins í Grímsvötnum 21. maí s.l.
Fleira ekki tekið fyrir. Fundi slitið kl. 18:00
Fundur í umhverfis- og náttúruverndarnefnd miðvikudaginn 17. nóvember 2010 kl. 20:30 í fundarherbergi Skaftárhrepps.
Mættir: Ragnheiður Hlín Símonardóttir formaður, Bryndís Guðgeirsdóttir, Kári Kristjánsson og Eygló Kristjánsdóttir sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
Fundargerð rituð í tölvu og er 2 blaðsíður að stærð.
- 1. Kosning ritara og varaformanns.
Varaformaður, Kári Kristjánsson
Ritari, Bryndís Guðgeirsdóttir. - 2. Umræða um fjárhagsáætlun 2011.
Nefndin leggur til að fjármunum verði veitt til sláttar og hirðingar á opnum svæðum en þó hugsanlega mætti endurskoða fyrirkomulag vinnunnar. Mikilvægt sé að gera starfslýsingu fyrir starfið. Nefndin mælist til þess að sveitarstjórn haldi málefnum refa- og minkaeyðingar vakandi og haldi fjármunum í þeim málaflokki. - 3. Umhverfisverðlaun Skaftárhrepps.
Rætt var um fyrirkomulag á veitingu verðlaunanna. Veitt verði ein verðlaun þetta árið og mun nefndin sjálf tilnefna verðlaunahafa. Verðlaunin verði veitt á Þorláksmessu. Á næsta ári verði stefnt að því að veita umhverfisverðlaunin fyrr á árinu, hugsanlega í tengslum við uppskeruhátíð. Helsta ástæða breytingarinnar er að fólk hafi tækifæri til að sjá fyrir hvað er verið að veita verðlaun, að gróður sé ekki kominn í dvala og að verðlaunaafhendingin falli ekki inn í jólaamstur. - 4. Innsend bréf.
Boð á ársfund umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga 2010.
Bréf frá UMÍS ehf Environice um kynningu á ráðgjöf til sveitarfélaga, stjórnvalda og fyrirtækja um umhverfismál og sjálfbæra þróun. - 5. Önnur mál.
Blómabeð Kvenfélagsins Hvatar, leiðinlegt að sjá að þau fallegu blóm sem þar voru sett niður hefðu hálf drukknað í arfa í sumar.
Rætt var um hreinsunardag að vori athugum hvernig best væri að haga því.
Hugmynd kom upp um að setja gáma fyrir járn og timbur úti í sveitunum. Þeir gætu verið í einhvern áhveðinn tíma til að mynda viku í senn. Heiða ætlar að skoða hvernig hægt er að hafa fyrirkomulag á þessu og athuga kostnað.
Kári leggur fram auglýsingu frá Ferðamálastofu þar sem auglýst er eftir umsóknum um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum. Umsóknarfrestur er til 20. desember 2010. Nefndarmenn ætla að kasta á milli sín hugmyndum að verkefnum sem hægt væri að sækja um styrk í.
Stiklað á stóru í lögum um Náttúruvernd og skoðað hvert hlutverk nefndarinnar er , sem er fjölþætt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 22:30










