Íbúafundir almannavarnarnefndar
04.03.2010
ÍBÚAFUNDIR
Almannavarnarnefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu boðar til neðangreindra íbúafunda:
Mánudaginn 15. mars 2010
kl.10:30 Goðaland, Fljótshlíð
kl.14:00 Gunnarshólma, A-Landeyjum
kl.20:00 Hvolnum, Hvolsvelli
Þriðjudaginn 16. mars 2010
kl.10:30 Njálsbúð, V-Landeyjum
kl.14:00 Heimalandi, V-Eyjafjöllum
kl.20:00 Leikskálum, Vík
Miðvikudaginn 17. mars 2010
kl.10:30 Fossbúð, A-Eyjafjöllum
kl.14:00 Tunguseli, Skaftártungu
kl.19:30 Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri
Á fundunum verður farið yfir hættumat vegna eldgosa og jökulhlaupa úr Eyjafjalla-og Mýrdalsjökli, stöðuna í dag, skipulag almannavarna og hvernig staðið verði að rýmingu svæðisins.
Almannavarnarnefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu










