Aðalfundur Klaustursdeildar og grunnnámskeið Rauðakrossins verður haldið á hótel Kirkjubæjarklaustri miðvikudaginn 3. mars kl. 20:00
26.02.2010
Námskeiðið hefst kl. 20:00. Það er fyrir sjálfboðaliða og aðra sem vilja starfa með félaginu eða kynna sér starfsemi þess. Farið er yfir í stuttu máli sögu, markmið og stefnu Rauða krossins og helstu áherslur í starfi félagsins innanlands og utan.
Strax að loknu námskeiði verður aðalfundur Klaustursdeildar haldinn.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar í boði deildarinnar. Allir velkomnir. Sjálboðaliðar og aðrir áhugasamir sérstaklega hvattir til að mæta.
Stjórnin.










